|
|
|
|
Forsiða Snyrtistofa - Nudd - Spa Líkamsmeðferð |
|
Snyrtistofa
|
|
|
|
|
|
|
|
Aveda andlitsmeðferðAveda andlitsmeðferð á sér engan sinn líka, hver einasta meðferð er einstök alveg eins og þú. Sérhver meðferð miðast við þarfir þínar og því er ekkert andlitsbað eins. Byrjað er á því að fylla út einfaldan spurningalista sem byggir á hugmyndafræði Aveda um frumefnin fimm, þannig að fagmaðurinn geti aðlagað meðferðina að þínum þörfum. Þetta er gert við hverja heimsókn enda ástand húðar mismunandi á hverjum tíma.
- Frumefni – Óendanleiki
- Frumefni – Loft
- Frumefni – Eldur
- Frumefni – Vatn
- Frumefni – Jörð
Míní andlitsbað
Míní andlitsbað inniheldur nudd og maska. Andlitið er hreinsað
og nuddað. Maskinn sem notaður er fer eftir ástandi húðar þinnar
hverju sinni.
Green Science hita-maski
Andlitsmaski sem aðeins fagfólk notar. Hann sléttir og mýkir áferð
húðarinnar, dregur úr hrukkum og fínum línum, einnig djúphreinsar
maskinn og eykur birtustig húðarinnar. Maskinn inniheldur sýru sem
er unnin úr olíu vetrarlilju sem hefur kosti ávaxtasýru án þess að
valda ertingu í húð eða roða. Hentar öllum tegundum húðar.
- 30 mínútur 5.500 kr. - 4 vikna meðferð/4 x 30 mínútur 16.500 kr.
Green ScienceStreituvaldar eins og útfjólubláir geislar (UV), reykingar, mengun og rakabreytingar skapa sindurefni sem ráðast gegn húðinni á degi hverjum. Þessir streituvaldar eru kveikjan af skaðlegum keðjuverkandi áhrifum sem valda ótímabærri öldrun, húðin tapar styrkleika; línur og hrukkur myndast, kraftur og útgeilsun minnkar. Andlitsbaðið og vörurnar sem eru notaðar eru sérstaklega búnar til með það markmið að vinna gegn ótímabærri öldrun húðar.
- 60 mínútur 8.200 kr.
- 90 mínútur 11.900 kr.
- 4 vikna meðferð 4x60 mínútur 24.600 kr.
Elemental Nature andlitsbað
Byrjað er á Ilmferðalagi og slökun. Húðin er svo yfirborðshreinsuð, djúphreinsuð og nudduð. Maski og handanudd. Jafnvægisstillandi Aveda olíur notaðar.
Botanical Skin Resurfacing Enhancement
Andlitsbað sem flýtir fyrir endurnýjun yfirborðshúðar
Ný sérhönnuð meðferð, ásamt vörum, sem er mun betri kostur en hin ertandi húðslípunarmeðferð. Árangurinn verður glæsilegur, skínandi björt og falleg húð án óþægindanna sem fylgir húðslípun.
Outer Peace Húðhreinsun
Ytra jafnvægi
Heildarlausn – sérútfærð fyrir þína húð – sem tekur ekki aðeins á húðvandamálum, heldur einnig á orsökunum þannig að húðin helst hrein. Innifalið er ráðgjöf, djúphreinsun, svitaholur dragast saman og roði minnkar, streitulosandi tækni er beitt og upplýsingar gefnar um hvernig best sé að halda húðinni hreinni og fallegri. Vörurnar sem eru notaðar vinna á orsökum vandans á mildan en áhrifaríkan hátt og leggja grunn að bjartri og heilbrigðri húð. Mælt er með þriggja vikna meðferð til þess að byrja með, þá næst hámarksárangur.
- 60 mínútur 7.500 kr.
- 90 mínútur 9.800 kr.
Þriggja vikna meðferð 3x60 mínútur 17.500 kr.
Handsnyrting og fótsnyrting
Einstaklingsmiðuð meðferð fyrir hendur og fætur. Endurlífgandi þjónusta þar sem beitt er réttri aðferð til að viðhalda og snyrta neglur og naglabönd.
Handsnyrting:
Neglur þjalaðar og naglabönd snyrt. Handanudd og heit naglabandaolía.
- 60 mínútur 5.900 kr.
- 75 mínútur m/lakki 6.900 kr.
Fótsnyrting
Neglur þjalaðar og naglabönd snyrt. Hörð húð fjarlægð og fætur nuddaðir með nærandi fótakremi.
- 60 mínútur 6.700 kr.
- 75 mínútur m/lakki 7.700 kr.
Caribbean Therapy™ hendur:Endurlífgandi og nærandi meðferð fyrir hendur, byggð á heilnæmri snertingu og plöntum frá eyjum Karabískahafsins sem bæta ástand nagla, naglabanda og handa. Sérstakt þykkni og volgur maski sem er unninn úr sjávargróðri ásamt nuddtækni, sem er upprunin frá karabísku eyjunum, sléttir, mýkir, róar og endurnærir.
- 60 mínútur 6.500 kr.
- 75 mínútur m/lakki 7.200 kr.
Caribbean Therapy™ fæturEndurlífgandi og nærandi meðferð fyrir fætur, byggð á heilnæmri snertingu og plöntum frá eyjum Karabískahafsins sem bæta ástand nagla, naglabanda og fóta. Sérstakt þykkni og volgur maski unninn úr sjávargróðri ásamt nuddtækni, sem er upprunin frá karabísku eyjunum, sléttir, mýkir, róar og endurnærir.
- 60 mínútur 6.900 kr.
- 75 mínútur m/lakki 7.900 kr.
Áframhaldandi meðferð
Augu
Nudd
Elemental Nature NuddNudd sem byggt er á samspili frumefna nátturunnar og hugmyndafræði Aveda um heilsu, fegurð og velferð einstaklingsins. Frumefni náttúrunnar eru fimm: óendanleiki, loft, eldur, vatn og jörð. Í meðferð er leitast við að koma jafnvægi á líkama og sál með hreinum ilmkjarnaolíum. Meðferð, tækni og blöndun ilmkjarnaolía eru aðlagaðar að þörfum viðskiptavinarins. Þú ráðfærir þig við sérfræðing Aveda og í sameiningu ákveðið þið hvaða nudd og meðferð hentar þér hverju sinni.
Klassískt slökunarnudd þar sem líkaminn er nuddaður frá toppi til táar. Mýkir vöðva, eykur slökun og vellíðan.
Aveda LíkamsmeðferðByggt er á hinni aldagömlu Ayurveda hugmyndafræði. Í líkamsmeðferð eru notaðar sérblandaðar ilmolíur og tækni sem slakar á, endurlífgar og færir líkamann aftur í jafnvægi.
BakmeðferðÁhrifarík meðferð þar sem markmiðið er að hreinsa og fegra bakið. Bakið er djúphreinsað og notaður er slakandi jurtamaski. Meðferðin endar á léttu nuddi.
SaltskrúbburLíkamsmeðferð þar sem líkaminn er skrúbbaður með steinefnaríku salti úr Dauðahafinu í bland við sérvaldar ilmkjarnaolíur. Endað er á léttu nuddi.
Þessi meðferð fjarlægir dauðar húðfrumur og endurnærir líkamann.
Chakra meðferðÞú kemur Chakra-stöðvum líkams í jafnvægi með þessari meðferð. Meðferðin samanstendur af vöðvanuddi fyrir bak,Chakra þrýstipunktameðferð fyrir fætur og Chakra aðferðafræði sem hefur það markmið að koma 7 örkustöðvum líkamans í jafnvægi. Chakra sprey fylgir með eftir meðferðina sem fólk tekur með sér heim og notar til þess að árangur meðferðar verði langvarandi. Spreyið eitt og sér kostar 5.535 kr.
Caribbean líkamsmeðferðUpplífgandi og endurnærandi vatnsmeðferð með græðandi snertingu og plöntum frá eyjum Karabískahafsins sem miðla innri ró, ásamt því að endurnýja líkama og skilningarvit. Meðferðin hefst á þurri líkamshreinsun, næst fylgir líkamsmaski unninn úr sjávarþangi og því næst er líkamanum pakkað inn og höfuð og andlit nuddað. Eftir sturtu fylgir líkamsnudd sem fullkomnar þessa meðferð sem sótt er til eyjanna hlýju og fögru.
|
|
|
|
|
| Borgartún 29, 105 Reykjavík, Sími 552-6789 |
|
|
|
|